Myndamorgunn á Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar

Myndamorgunn á Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar

Föstudaginn 27. mars 2026, milli kl. 10.00-12.00  verður myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar þar sem gestir aðstoða við greiningu ljósmynda úr eigu safnsins.

Myndin hér að ofan er frá heimsókn forseta Íslands í Borgarfjörð 5. júlí 1992.  Sigrún Símonardóttir forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar og Vigdís Finnbogadóttir forseti ganga, ásamt fylgdarliði, inn í Skallagrímsgarð í Borgarnesi.  Ljósmyndari: Júlíus Axelsson.

Verið velkomin!
Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar

Dagsetning:

Byrjar: 27.03.2026, 10:00
Endar: 27.03.2026, 12:00

Staðsetning:

Safnahúsið, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi

Verð:

Frítt