Ærnar renna eina slóð

Ærnar renna eina slóð

Landbúnaðarsafn Íslands stendur fyrir viðburði í Skemmunni á Hvanneyri þann 25. mars en þar mun Bjarni Guðmundsson vera með spjall um fjárgötur og kindaslóða. Um erindið segir:
Í máli og myndum segir Bjarni frá verkefni um kindagötur og fjárstíga sem hann hefur unnið að um nokkurt skeið með hjálp heimildarmanna víða um land. Verkefnið á að varpa ljósi frá ýmsum hornum á þessar menningarminjar sem margar hverjar eru eldfornar.
Kaffi verður á könnunni og aldrei að vita nema safnstjórinn skelli í eina sort! Verið öll hjartanlega velkomin til okkar á Hvanneyri 🙂

Dagsetning:

Byrjar: 25.03.2026, 20:00
Endar: 25.03.2026, 22:00

Staðsetning:

Skemman, Hvanneyri

Verð:

Frír aðgangur