Sveinukot – Nýtt deiliskipulag

Sveinukot – Nýtt deiliskipulag

Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing að nýju deiliskipulagi Sveinukots í Borgarbyggð.

Sveinukot

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 09.01.2026 að auglýsa lýsingu að nýju deiliskipulagi fyrir Sveinukot í Borgarbyggð.

Lýsingin tekur til lóðarinnar Sveinukot (L237748) sem stofnuð er úr landareigninni Samtún (L134457). Lóðin er 4,8ha að stærð og er þar áætlað að byggja upp lágstemmda gistiþjónustu með 19 smáhýsum auk sameiginlegrar baðaðstöðu, alls um 610 m². Aðkoma verður um núverandi vegslóða inn á túnið frá Reykdælavegi (nr.517) samkvæmt leiðbeiningum vegagerðar, um 250 m. frá nálægustu skráðu vegtengingu. Aðkomuvegur verður betrumbættur til að fullnægja kröfum um aðkomu neyðar- og þjónustubifreiða. Í endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037 er landnotkun lóðarinnar breytt úr landbúnaðarlandi í verslun og þjónustu. Skipulagslýsing er aðgengileg í skipulagsgátt,

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 41/2026) frá 14.01 til og með 01.02.2026 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.

 


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 14. janúar, 2026.