Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (Beactive) boða Borgarbyggð og Ungmennasamband Borgarfjarðar til Virkniþings 2026 í Hjálmakletti þar sem íbúum gefst tækifæri til að kynna sér það fjölbreytta íþrótta-, tómstunda- og virknistarf sem í boði er í Borgarbyggð fyrir börn, ungmenni og fólk á öllum aldri.
Öllum þeim sem standa að íþrótta-, tómstunda- eða annars konar virknistarfi í Borgarbyggð er boðið að taka þátt og kynna starfsemi sína sér að kostnaðarlausu.
Langar þig að taka þátt og kynna þína starfsemi?
Endilega hafðu samband til að sækja um pláss sonjalind@borgarbyggd.is eða bjarney@umsb.is
Umsóknir þurfa að berast fyrir 21. september.

Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
