6. febrúar, 2026
Fréttir

Lilja Björg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Viktor Ingi, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningarmála heimsóttu nýverið ungmenni í Borgarbyggð þar sem þau kynntu Borgarbyggð, þau verkefni sem sveitarfélagið sinnir, stjórnsýslu og stafræna vegferð sveitarfélagsins. Meginástæða heimsóknanna var að kynna hugmyndasamkeppni meðal ungmenna sveitarfélagsins um nafn og útlit á nýjum starfsmanni Borgarbyggðar sem tekinn var til starfa á síðasta ári.

Starfsmaðurinn sem um ræðir er stafrænt vinnuafl sem mun gegna mikilvægu hlutverki við að auka sjálfvirkni og skilvirkni í þjónustu Borgarbyggðar. Verkefni stafræna vinnuaflsins eru meðal annars afstemming lánadrottna og kröfuvöktun en fleiri verkefni eru í þróun.

Með tilkomu stafræna vinnuaflsins stígum við stórt skref í átt að bættri þjónustu við íbúa og betra starfsumhverfi starfsmanna.

Heimsóknirnar fóru fram í Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar og Menntaskóla Borgarfjarðar, þar sem ungmennum sveitarfélagsins gafst tækifæri til að fræðast um sveitarfélagið og taka virkan þátt í að móta auðkenni eða logo fyrir nýjan stafrænan starfsmann.

Einstaklega gaman var að hitta ungmennin, heyra hugmyndir þeirra og finna fyrir mikilli sköpunargleði enda einstaklega efnilegur hópur sem við eigum hérna í sveitarfélaginu.

Við hlökkum til að sjá hugmyndir þeirra blómstra og þeirra þáttöku við að þróa verkefnið með okkur.

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.