30. apríl, 2026
Fréttir

Við Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 16. maí 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð og Skorradalshrepp sem hér segir:

Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi

Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl.

Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.

 

Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu

Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.

 

Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi

Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst, Þverárhlíð.

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.

 

Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum á Kleppjárnsreykjum

Þar kjósa íbúar Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals, Reykholtsdals, Hvítársíðu og Hálsasveitar.

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00

 

Skorradalskjördeild í Laugarbúð Skorradal

Þar kjósa íbúar Skorradals.

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.

Opið er fyrir uppflettingar í kjörskrá, sjá hér.

 

Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. Á kosningavef Stjórnarráðs Íslands kosning.is geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa og þar eru ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar. Á kjördag verður yfirkjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi.
Sími formanns er 862-1270.

 

Yfirkjörstjórn Borgarbyggðar

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.