16. febrúar, 2026
Fréttir

Söfnun á rúlluplasti fer fram nú í lok vikunnar (12.-20. janúar) og áfram í byrjun næstu viku.
Bændur eru beðnir um að hafa plastið vel til reiðu og aðgengilegt þannig að hægt sé að sækja það fljótt og örugglega.

Mikilvægt varðandi söfnun núna

  • Bændur skulu tryggja að plastið sé snyrtilega frá gengið.
  • Aðeins má skila rúlluplasti – ekki öðru plasti, neti eða öðru efni.

Næstu fyrirhuguðu plastsafnanir 2026

Eftir söfnunina í þessari og næstu viku verða næstu söfnunartímabil sem hér segir:

  • 20.–30. apríl
  • 6.–10. júlí
  • 7.–11. september
  • 9.–13. nóvember

Mikilvægt um söfnun á þessum dögum

Eftir þessa fyrstu söfnun er gerð krafa um litaflokkun í framhaldinu.
Það þýðir að:

  • Halda þarf öllum litum aðskildum.
  • Plast skal vera vel hreinsað og snyrtilega frá gengið.
  • Ekki má skila plasti í pokum.
  • Aðeins er tekið á móti rúlluplasti.
  • Ekki er sótt plast sem er í lausu eða í gámum.

Borgarbyggð hvetur bændur til að fylgja þessum reglum svo söfnunin gangi sem greiðast.

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.