Hanna Ágústa var útnefnd sem “Listamanneskja Borgarbyggðar” og móðir hennar Theodóra Þorsteinsdóttir fékk einnig viðurkenningu fyrir frábær störf við Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Hanna er upprennandi stjarna sem við hér í samfélaginu getum verið stolt af, hún hefur aflað sér menntunar á sviði söngs og óperufræða, hlotið viðurkenningar og styrki vegna hæfileika sinna og metnaðar á sviði tónlistar.
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir er fædd og alin upp hér í Borgarnesi. 5 ára gömul hóf hún fiðlunám í Tónlistarskóla Borgarfjarðar, en þar stundaði hún líka píanó- og söngnám fram á unglingsár. Hún stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík þaðan sem hún útskrifaðist árið 2017. 2022 lauk Hanna bakkalárprófi frá Tónlistarháskólanum Felix Mendessohn Bartholdy í Leipzig. Sama ár fór hún jafnframt í starfsnám í óperuleikstjórn í Freiberg í Þýskalandi.
Hanna hefur tekið þátt í uppsetningum og tónleikum bæði hér heima og í Evrópu. Hún söng einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands eftir að hafa borið sigur úr bítum í keppninni Ungir einleikarar árið 2021. Hanna Ágústa kom fram á Reykholtshátíð á síðasta ári og kemur fram aftur á sömu hátíð í lok júlí í ár. Hanna Ágústa hefur kennt bæði við Tónlistarskóla Borgarfjarðar og Tónlistarskólann á Akranesi, auk þess að koma fram við hin ýmsu tækifæri. Meðan hún stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík hlaut hún styrk úr minningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar, hún hlaut einnig styrk úr minningarsjóði Heimis Klemenzsonar árið 2021. Í desember síðastliðnum söng hún hlutverk Óla Lokbrár í uppfærslu Kammeróperunnar á Hans og Grétu í Tjarnarbíói sem fékk til að mynda tilnefningu til barnasýningar ársins á Grímunni. Í vetur tók hún þátt í söngkeppninni Vox Domini og hreppti fyrsta sætið í opnum flokki og hlaut þar að auki nafnbótina Rödd ársins.
Hanna hefur eflt menningarlífið hér í sveitarfélaginu með söng sínum og kennslu og er góð fyrirmynd fyrir upprennandi tónlistarfólk hvað æfing, áhugi og atorka getur komið manni langt, og þetta er bara rétt að byrja, Við eigum vafalaust eftir að geta fyllst með henni og notið söngs hennar næstu áratugina.
Tengdar fréttir
Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.