18. júní, 2026
Fréttir

Kæru íbúar Borgarbyggðar.

Það er mér mikill heiður að ávarpa ykkur hér í dag á einum merkasta degi ársins. Í dag, á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar, fögnum við því stærsta og dýrmætasta sem við eigum, frelsi okkar.

Það þurfti kjark til að berjast fyrir því frelsi. Þeir voru til sem efuðust. En saga lýðveldisins okkar er mjög merkileg. Við vorum meðal fátækustu þjóða Evrópu við lýðveldisstofnun. Á einni mannævi urðum við Íslendingar ein ríkasta þjóð heims. Við tókum í eigin hendur fulla ábyrgð á landsmálunum og nýttum frelsi okkar til að skapa okkur bætt lífskjör, menntun og sterkt velferðarsamfélag.

Guðmundur Finnbogason, einn merkasti menntafrömuður Íslendinga, orðaði það svo að „menntun“ væri samstofna orðinu „maður“ og að menntast merkti að „verða að manni“. Það er mikilvægasta hlutverk okkar sem erum í forsvari fyrir sveitarfélög þessa lands að búa svo um hnútana að komandi kynslóðir fái tækifæri til að þroskast, læra og verða að manni í besta skilningi þess orðs. Því mennt er máttur. Hún er ekki aðeins leið til aukinnar þekkingar, heldur grunnur að sjálfstæði, ábyrgð og farsælu samfélagi.

Sagan sannar það sem Jón Sigurðsson vissi: að þjóðum farnast best þegar þær stýra sínum málum sjálfar.

Jón Sigurðsson spurði í sinni tíð hvort sá bóndi teldi sig frjálsan sem mætti ekki hafa skipti við nágranna sína nema fyrir milligöngu annars. Slíku frelsi myndi enginn bóndi una til lengdar. Það var þessi einfalda en óbilandi hugsjón sem knúði sjálfstæðisbaráttu Íslands áfram. Sjálfstæði þjóðarinnar var ekki sótt með vopnum, heldur rökum, þolinmæði og þjóðlegri samstöðu.

Þegar við Íslendingar lýstum yfir stofnun lýðveldis á Þingvöllum þann 17. júní 1944 var það ekki bylting heldur uppfylling drauma og hugsjóna.

Ísland er fallegt land og í Borgarbyggð er að finna margar náttúruperlur. Hér flæða Hraunfossar fram úr hraunkantinum eins og galdur. Hér gnæfir Eldborg yfir sléttuna. Hér leynist Víðgelmir í iðrum jarðar, lengsti og stærst hraunhellir heims. Hér er Andakíll þar sem fuglalíf fær að þrífast í friði, Grábrókargígar sem minna okkur á eldinn í iðrum jarðar og Húsafellsskógur þar sem trén ná áður óþekktum hæðum á Íslandi. Þetta er landið okkar.

En landið hefur gefið okkur meira en sögu og fegurð – landið mótar okkur. Egill Skallagrímsson ólst upp hér á Borg á Mýrum og úr honum varð eitt stærsta skáld íslenskrar fornaldar. Snorri Sturluson bjó í Reykholti og skrifaði þar helstu gersemar bókmenntanna sem við berum enn með okkur.

Þúsund árum síðar ólst Anna Þorvaldsdóttir upp hér í Borgarnesi, umkringd sama sjó og sömu fjöllum, og varð að þekktasta tónskáldi Íslands á alþjóðavísu.

Hún hefur sagt að náttúra þessa svæðis, fjöllin, sjórinn og vindurinn, hafi mótað hljómheim hennar. Tónlist hennar er flutt í stærstu konsertsölum heims og þannig hljómar menning sem landið okkar hér í Borgarbyggð hefur átt þátt í að skapa hátt og skýrt um heimsbyggðina. Það er ástæða til að vera stolt af þeirri arfleifð. Við mótumst öll af umhverfi okkar, rétt eins og þau Egill, Snorri og Anna gerðu.

Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt að fá að gegna starfi sveitarstjóra Borgarbyggðar næstu árin. Ég er auðmjúk gagnvart þeirri ábyrgð sem fylgir því að þjóna öllum íbúum þessa sveitarfélags, óháð pólitísku viðhorfi eða búsetu. Verkefnin eru skýr: við ætlum að tryggja góða þjónustu, sterkt atvinnulíf og að Borgarbyggð sé staður þar sem fólk velur sér búsetu. Ekki af nauðsyn, heldur vegna þess að hér er best að búa.

Á þessum hátíðardegi lýðveldisins er gott að minna sig á að við, sem störfum í ykkar þágu, þjónum fólkinu, ekki kerfinu. Jón Sigurðsson vissi þetta mæta vel.

Kæru Borgfirðingar.

Ég heiti ykkur því að haga mínum störfum í þeim anda; af auðmýkt, ábyrgð og með hagsmuni fólksins að leiðarljósi.

Takk fyrir að taka vel á móti mér.

Gleðilegan þjóðhátíðardag, gleðilegan 17. júní!

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.