roofing
Fréttir og tilkynningar
16. febrúar, 2026
Fréttir
Stjórnarkjör Félags stjórnenda leikskóla fór fram dagana 9. til 11. febrúar. Á kjörskrá voru 476 félagsmenn en 266 greiddu atkvæði, eða 55,88%.
Alls voru ellefu í kjöri, en kosið var um fjögur sæti í aðalstjórn og þrjú í varastjórn.
Elín Friðriksdóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Uglukletti hlaut flest talin atkvæði og hlýtur því sæti í aðalstjórn.
Það er mikið gleðiefni að eiga fulltrúa í aðalstjórn og viljum við óska Elínu innilega til hamingju með árangurinn.
Niðurstaða í stjórnarkjöri Félags stjórnenda leikskóla (FSL)
Kjörnir fulltrúar
Elín Friðriksdóttir – 167 atkvæði, 1. sæti
Halldóra Guðmundsdóttir – 150 atkvæði, 2. sæti
Jónína Einarsdóttir – 133 atkvæði, 3. sæti
Anna Björk Marteinsdóttir – 111 atkvæði, 4. sæti
Varamenn
Marthen Elvar Veigarsson Olsen – 96 atkvæði, 1. varamaður
Jóna Rut Jónsdóttir – 95 atkvæði, 2. varamaður
Lísa Lotta Björnsdóttir – 93 atkvæði, 3. varamaður
Ný stjórn tekur svo formlega við á aðalfundi FSL í ágúst.
Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir
Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
