14. ágúst, 2026
Fréttir

Sunnudagskvöldið 16. ágúst og mánudagskvöldið 17. ágúst er stefnt á að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brú yfir Borgarfjörð.
Veginum er lokað á meðan framkvæmdir standa yfir en  merkt verður hjáleið um Borgarfjarðarbraut.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 bæði kvöld .

Merkingar og upplýsingaskilti verða sett upp skv. viðhengdri merkingaráætlun, sem að má finna hér, Lokunarplan

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Vinnusvæðin eru þröng, gera má ráð fyrir að starfsfólk og tæki verða við vinnu mjög nálægt akstursbrautum

 

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.