Sameining Skorradalshrepps og Borgarbyggðar var samþykkt í íbúakosningu í september á síðasta ári og tók sameiningin gildi 01.06.2026. Kosið var í sveitarstjórn sameiginlegs sveitarfélags í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí s.l.
Ákveðið hefur verið að sameinað sveitarfélag skuli nota kennitölu Borgarbyggðar og mun skrifstofa Borgarbyggðar sjá um móttöku og greiðslu reikninga sameinaðs sveitarfélags frá og með 01.06.2026.
Hér með er því farið fram á að allir reikningar sem hingað til hafa verið gefnir út vegna starfsemi í Skorradalshreppi verði hér eftir gefnir út á kennitölu Borgarbyggðar sem er 510694-2289 og sendir með rafrænni skeytamiðlun til Borgarbyggðar.
Borgarnesi 01.06.2026
Skrifstofa Borgarbyggðar
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
